13. september 2008 klukkan 18:02
Við Topaz vorum í dag í Garðheimum að sýna okkur og sjá aðra :)
Um helgina eru smáhundadagar þar sem allskonar tegundir eru til sýnis fyrir þá sem
vilja kynna sér smáhundategundir hér á klakanum betur :)
Topaz stóð sig ótrúlega vel og var alveg hættur að bakka þegar fólk kom að(hann byrjar alltaf á því eitthvað óöryggi í fyrstu).
Þorsteinn og Emil voru þarna með okkur og Topaz var sko ekkert rosalega hrifin af
Emil en þeir voru farnir að vera ágætir saman eftir smá tíma:)
set smá myndir hérna með

Topaz

Emil

Fallegastur hennar"mömmu"

Emil sæti að pósa

Topaz og Emil að kynna sig saman fyrir hönd silky terrier á íslandi :)
Sigga Erla
06. ágúst 2008 klukkan 14:51
Langt síðan ég bloggaði síðast..
ég er búin að vera í sumarfríi undanfarið sem er aaalveg að verða búið :(
ég sem ætlaði mér að gera svo mikið...
En við erum allavega flutt í nýja húsið og hundarnir eru alveg sáttir á nýja staðnum eins og ég :)
ég skellti mér svo með Helenu og Guðrúnu til sþvíþjóðar að skoða hunda á heimssýninunni..það var bara ævintýri og ótrúlega gaman
sá marga marga fína hunda og það eru alveg tegundir sem ég sá sem gætu alveg komið á mitt heimili einhverntíman ;)
ég átti svo afmæli um daginn(29 júlí).. varð 21 árs ...*til hamingju ég*
fékk rosa fínar gjafir.. takk fyrir mig :*
svo er Verslunarmannahelgin ný búin og ég gerði nú voða fátt...
fórum aðeins í sveitina að hitta fólkið mitt og grilla og svona, Krummi og Helma voru þar með barnastóðið sitt í hjólhýsi ótrúlega kósý,þar var auðvitað yngsta frændsystkinið mitt hann Ívar Orri sem er bara sætur :)
hundarnir elska það mest í heimi að fara í sveitina hér eru myndir af þeim:)

Anastasía Prinsessa

Trinity alveg í essinu sínu

Karma pæja hjá skóginum

og svo Prinsinn minn hann Topaz
Verð svo að setja eina af honum Ívari Orra..
hérna er hann með stóru systur sinn henni Katrínu

Bæ í bili (vonandi ekki eins langt bil og síðast;)
Sigga Erla
29. júní 2008 klukkan 16:14
Jæja þá er þáttöku okkar Topazar lokið á þessari sýningu og erum við mjög ánægð með árangurinn :)
Topaz varð Besti hundur tegundar með íslenskt meistarastig og varð svo í þriðja sæti í grúbbu 3 :)
er mjög stolt af litla prinsinum mínum og dómarinn var mjög ánægð með hann líka, fékk mjög góðan dóm :).
Núna styttist í að ég og Guðrún höldum til svíþjóðar og öll "börnin" mín fara í pössun, það er alltaf smá stressandi að fara svona frá þeim en ég veit að þau eru í góðum höndum á meðan :)
Vil óska öllum til hamingju með árangurinn sinn á sýningunni, flott sýning að vana og við Topaz í skýjunum
Sigga Erla
20. júní 2008 klukkan 19:52
jæja þá er maður nokkurnvegin farin að halda að það sé komið sumar, allavega búið að vera gott veður síðustu daga :)
það styttist óhugnalega í bæði sumarsýningu HRFÍ og svo er það HEIMSÝNINGIN í svíþjóð.
þvílíkt sem tíminn er fljótur að líða!
Annars er bara allt gott að frétta, ég fer í sumarfrí 16 júli og þann sama dag fáum við afhent nýja húsið sem við erum að fara að flytja í :)
Hún Foxy skvísa systir körmu er í pössun hjá okkur og er hún að leita að heimili litla rúsinan :(
hún er alveg yndisleg og ekkert fyrir henni haft!
ótrúlegt hvað það eru líki taktar í þeim systrum og hljóðin í þeim alveg eins!
hérna er litla rúsínan
Sigga Erla
11. júní 2008 klukkan 18:20
við familian(ég og hundarnir) skelltum okkur í litla kofann hennar ömmu minnar
sem heitir Móberg og er staðsettur í landsveitinni...
það er alltaf jafn yndislegt að koma þangað.. ekkert rafmagn, ekkert rennandi vatn nema lækurinn fyrir utan og maður slakar afskaplega vel á..
hundarnir gjörsamlega fíluðu þetta í tætlur hlaupandi úti allan daginn í hrauninu og allstaðar. þau trúðu á tímabili að þau gætu verið smalahundar og ætluðu að skoða kindurnar nánar en um leið og þær löbbuðu í áttina að hundunum(allir að passa lömbin sín) var eins og þau fengu rakettu í rassin og brunuðu til baka hehe
set nokkrar myndir með úr ferðinni enjoy!

Topaz kjútígæ

Karmaólína

Anastasía dótasjúklingurinn minn

trínan fína

öðruvísi mynd af Topaz með regnboganum:)

öll grúbban..Körmu orðið soldið kallt hehe
eins og glöggir menn taka eftir þá er Nala ekki lengur hjá okkur:( en hún er komin á
æðislegt heimili þar sem hún er bara prinsessan á bauninni og þarf ekkert að vera að slást um valdabaráttu eins og var orðið vesen hér á bæ :(
Sigga Erla
22. maí 2008 klukkan 21:06
Jæja ísland komið áfram í eurovision.
verður party á laugardaginn eða hvað..
ég er alvarlega að íhuga að kíkja á hann Palla vin minn á Nasa :)
einhver game;)
ég horfði nú á mest spennandi fótboltaleik ever í gær....
ég var ánægð með úrslitin,kýs Man.u frekar en Chelsea
ýkt spennó frá upphafi til enda:)
congrats Manchester fólk
yfir og út
Sigga og hundalingar
Sigga Erla
05. maí 2008 klukkan 20:52
ákvað að blogga yfir afmælisfærsluna þó svo ég hafi nú ekkert mikið að seigja!
allt gengur sinn vanagang hérna á heimilinu, hundarnir alltaf jafn klikkaðir og svona :)
Topaz er búin að finna sér nýjan uppáhaldstað á meðan ég hangi í tölvunni (sem er nánast aldrei eða þannig)

kjánaprik í tölvuborðinu hehe.
skildi ekkert í því að ég væri að taka mynd af honum þarna
Sigga Erla
16. apríl 2008 klukkan 17:42
í dag er prinsessan mín hún Anastasía 5 ára..
til hamingju með það ellismellurinn þinn

Skvísan sem stjórnar heimilinu
Sigga Erla
13. apríl 2008 klukkan 12:15
Ég held svei mér þá að það sé hægt að taka lit í gegnum glugga.
sýndi um daginn mynd af Körmu steikja sig sólinni inni...
var að gramsa í gegnum myndirnar og gerði merkilega uppgötvun..Karma er bara orðin svertingi..
hún hefur ekki verið mikið úti í sólinni enda finnst henni allt of kalt hehe..
verð að sýna myndir

Karma í Febrúar 08

og svona er hún í dag (april 08)
Sigga Erla
05. apríl 2008 klukkan 13:09
jæja ég fékk í póstinum um daginn 2 hurtta galla sem ég búin að vera að bíða eftir..
vinkona mín í finnlandi keypti þá fyrir mig á silkyana! :)
ég er ýkt ánægð með þá og þeir hefta engan vegin hreyfingar komum úr göng áðan og viti menn enginn mosi í feldinum vúhú!!
sendi myndir af þeim með

sæt sæt "systkini"

vúhú!!

sæti.. jafn ánægður með gallann og "mamma"
svo er hann Dúskur hennar Önnu Birnu í pössunn hjá okkur í dag þar sem fjölskyldan fékk sér bíltúr í sveitina..
hann og Topaz eru svona að vingast smátt og smátt.. en hinar vilja ekki sjá þetta hvolparassgat!

er maður sætur eða hvað :)
Sigga Erla